Sunday, November 10, 2013
Monday, October 14, 2013
9 mánaða!
Þá er Katla Eldey orðin 9 mánaða, búin að vera svipað lengi inni í bumbu og úr bumbu.
Tíminn líður eitthvað svo ótrúlega hratt og allt í einu er barnið sem bjó í bumbunni farið að veifa bless, dansa og borða fisk.
Katla er hjá dagmömmu á daginn og svo passa Eiður frændi og Ásthildur hana seinnipartinn, þegar pabbi hennar er að vinna. Þetta gengur allt alveg afskaplega vel og henni leiðist sko ekki að hafa svona mikið af skemmtilegu fólki í kringum sig :)
Við erum ekki búin að vera nógu dugleg að taka myndir á myndavélina undanfarnar vikur, en hér koma samt nokkrar :)

Sunday, September 15, 2013
8 mánaða!
Katla Eldey varð 8 mánaða á föstudaginn!
Nú eru báðir foreldrarnir búnir í fæðingarorlofi og aðlögun hjá dagmömmu tekur við á morgun. Öðruvísi tímar framundan!
Við erum búin að skemmta okkur konunglega saman undanfarnar vikur. Við skelltum okkur m.a í heimsókn austur á Hornafjörð, þar sem Maggi afi hélt uppá stórafmæli.
Katla er komin með tvær tennur og kann orðið að segja 'datt' og fleiri einföld orð, sem hún notar óspart. Það styttist örugglega í að hún fari að standa óstudd og labba, en hún leikur áhættuatriði fyrir okkur allan daginn.
Hún klappar saman lófunum, sýnir hvað hún er stór, gefur high five og veifar bless. Áður en við vitum af verður hún farin að biðja um pening í bíó. Katla Eldey er svo sannarlega mikill gleðigjafi :)

![]() |
Í peysu af mömmu |
![]() |
Útsýnið úr bakgarðinum í heima í Hólmi er ekki slæmt |
![]() |
![]() |
Álfur hreindýrskálfur |
![]() |
Afmælisbarnið eitthvað feimið |
Hjá Gunnu ömmu og Arndísi frænku |
![]() |
Hjá Gauja frænda |
Pabbi að græja veislu |
![]() |
Móa nágranni kom í heimsókn til okkar |
Monday, September 2, 2013
Subscribe to:
Posts (Atom)