:)
Friday, February 14, 2014
1 árs afmæli Kötlu Eldeyjar!
Katla varð 1 árs 13.jan síðastliðinn og hélt kisuveislu nokkrum dögum seinna handa vinum og vandamönnum. Við áttum ótrúlega skemmtilegan dag! Myndirnar koma auðvitað mánuði of seint, en komu þó :)
Sunday, February 2, 2014
Síðustu 3 mánuðir
Katla Eldey hefur ekki bloggað í nokkra mánuði, en það er vegna þess að tölvan á heimilinu hrundi. Blessuð sé minning hennar. Við fjárfestum í nýrri tölvu í gær (algjörri skvísu!) og því er tilvalið að setja inn nýja færslu með myndum frá síðustu mánuðum.
Í síðustu færslu var Katla Eldey ekki nema 9 mánaða, en síðan hefur margt breyst, því hún er orðin eins árs! Hún er að safna tönnum, farin að tala helling (orðin kúka, kisa og mjá eru t.d í uppáhaldi!) og svo byrjaði hún að labba tæplega 10 mánaða. Þessa dagana hleypur hún út um allt, klifrar, keyrir á bílnum sínum og biður mann ýmist um að syngja eða lesa fyrir sig. Hún á orðið fullt af bókum og hefur einstaklega gaman af þeim sem segja sögur af kisum eða öðrum dýrum.
Hér kemur heill hellingur af myndum sem teknar voru á síðustu 3 mánuðum. Svo ætla ég að gera sér afmælisblogg, því í afmælinu hennar voru teknar margar skemmtilegar myndir.

![]() |
9 mánaða Katla hjá Tinnu 'frænku' |
![]() |
10 mánaða grallari að stelast í skúffurnar |
Við fengum heimsókn frá Fríðu Láru í nóvember! |
Það er hálft ár á milli þeirra og í augnablikinu er stærðarmunurinn töluverður :) |
![]() |
Þær skiptust á snuðum |
![]() |
Pabbi segir að jólamaturinn sé að verða tilbúinn! |
jólafjölskylda |
![]() |
Þessi fékk nokkra pakka :) |
Katla að borða jólamatinn með bestu lyst |
![]() |
Mamma að borða jólamatinn |
![]() |
Pabbi að borða jólamatinn |
Þessi pakki var spennandi! |
Bless í bili!
Subscribe to:
Posts (Atom)