Lítil mús fæddist 13.janúar 2013. Hún var reyndar ekkert svo lítil mús, því hún var 19 merkur og 51 cm. Bollumús! Biðin eftir þessari mús hefði allt eins getað verið 7 ár, eða það fannst mömmu hennar að minnsta kosti. Músin lét hafa svolítið fyrir sér á meðgöngunni og mamman þurfti að hætta að vinna mjög snemma til þess að geta strokið bumbunni allan daginn.
Eftir 40 vikur og 6 daga mætti hún síðan loksins í heiminn, heima í Stigahlíðinni. Tvær yndislegar ljósmæður voru viðstaddar, en föðursystir músar var önnur þeirra og tók hún á móti.
 |
Glæný |
Daginn eftir að músin kom í heiminn þurfti að leggja hana inn á vökudeild barnaspítalans, en hún var með það sem kallað er 'vot lungu'. Foreldrunum fannst það nú ekki beint spennandi að horfa uppá, en hún styrktist hratt og fékk að fara heim nokkrum dögum seinna.
10 dögum seinna þurfti mamman líka smá innlögn. Hún fékk nú samt að fara heim mjög fljótt, eða eftir smá hvíld og rausnarlegan glaðning úr blóðbankanum/gleðibankanum. Bæði mús og móður heilsast mjög vel í dag!
 |
Spítalamatur eins og hann gerist bestur. Gulrætur með rúsínum(!?) |
Gaman er að fylgjast með músinni vaxa og þroskast. Hún brosir, hlær (hljóðlaust ennþá að vísu!) og kætir foreldranna geð.
 |
Þessar vinkonur eru fæddar 11.,12. og 13.janúar |
 |
Stundum vefst það fyrir pabbanum hvernig á að klæða barnið í buxur. Það hlýtur að koma með tímanum. |
 |
Sofandi á bumbunni á mömmu |
 |
Músin er mikil aðdáandi múminálfanna. Hún bara veit það ekki ennþá! |
2.mars var nafn músarinnar opinberað að viðstöddum ömmum, öfum, frænkum, frændum og mökum. Hún fékk nafnið Katla Eldey, en foreldrarnir voru lengi búnir að berjast við að kjafta því ekki í fólk. Fólk gæddi sér á súpu og kökum og dagurinn hefði ekki getað verið betri!
 |
Nafnatertan var heimatilbúin og bar það líklega með cher. Bragðgóð var hún samt! |
 |
Litla fjölskyldan á nafnadaginn |
 |
Katla Eldey |
 |
Með Amalíu ömmu og Tjörva afa |
 |
Með Guðrúnu ömmu og Magnúsi afa |
Hér ætlum við að setja inn fréttir, myndir og upplýsingar um Kötlu Eldeyju svoleiðis að fjölskyldurnar okkar og aðrir aðdáendur geti fylgst með.
Takk og bless! <3
Kolla frænka (sú eldri) fer nú bara að vola við það eitt að sjá þetta fallega nafn á prenti :) ♥
ReplyDelete